Eldri fréttir
30.05.2013
Arinbjörn Guðmundsson er nýráðinn til starfa og verður hjá okkur í sumar, hann hefur verið í rafiðnaðarnámi. Einnig hefur Níels Sveinsson rafvirki og kafari með meiru verið hjá okkur í vetur og verður áfram í hlutastarfi. Velkomnir til starfa.
Lesa meira
Eldri fréttir
13.02.2013
Það komu margir sönghópar í heimsókn til okkar í dag og sungu fyrir nammi og við viljum þakka kærlega fyrir okkur :)
Myndir voru teknar af öllum og má sjá þær undir "myndir" hér ofar á síðunni. Einnig er gaman að skoða eldri myndir en við höfum myndað alla sem koma í heimsókn á Öskudaginn frá árinu 2009.
Lesa meira
Eldri fréttir
08.06.2012
Við höfum gengið frá samningum við Tréverk ehf um að sjá um rafmagnið í stækkun Promens verksmiðjunnar hér á Dalvík. Einnig munum við koma að uppsetningu á nýjum framleiðsluofni sem komið verður fyrir í nýja húsnæðinu hjá Promens.
Lesa meira
Eldri fréttir
20.05.2012
Haraldur Örn Haraldsson og Brynjar Árnason hafa verið ráðnir til starfa hjá okkur í sumar. Þeir hafa báðir verið í sumarvinnu hjá okkur undanfarin ár með námi.
Lesa meira
Eldri fréttir
22.04.2012
Arnór Gunnarsson er nýráðinn til starfa og bjóðum við hann velkominn.
Lesa meira
Eldri fréttir
22.02.2012
Við viljum þakka öllum krökkum sem komu til okkar í dag og sungu fyrir okkur og fengu nammi í verðlaun.
Lesa meira
Eldri fréttir
03.01.2012
Við bjóðum Þorstein Þorvaldsson velkominn til starfa, en hann hóf störf hjá okkur í október.
Steini starfaði áður sem rafvirki hjá Orkuvirki í Reykjavík og er núna búsettur á Akureyri
Lesa meira
Eldri fréttir
02.01.2012
Höfum samið við Tréverk ehf um að sjá um raflagnir í 3 íbúða raðhús sem þeir eru að byggja við Goðabraut á Dalvík.
Lesa meira
Eldri fréttir
29.05.2011
Höfum samið við Dalvíkurbyggð um að sjá um endurnýjun á öllu rafmagni í Víkurröst sem tengjast endurbótum og breytingum sem fram fara á húsinu í sumar og haust.
Lesa meira
Eldri fréttir
28.05.2011
2 starfsmenn hafa verið ráðnir í sumar og hafa þeir báðir unnið hjá okkur áður. Þetta eru Haraldur Örn Haraldsson og Brynjar Árnason og eru þeir boðnir velkomnir til starfa.
Lesa meira